rokkarar
læt eins og fullt af fólki lesi þetta. Fórum í stutta suðurlandsferð í dag, mamma er í bæinum. Sólheimar , Slakki, Laugarvatn, Þigvellir (þjónustuhúsið) og heim. Mjög fínt fengum okkur að borða í Slakka, hamborgarinn var sæmilegur en pizzan sem strákarnir fengu var mun betri. Gullkorn vikunnuar; morgun ,Einar að tygja sig í vinnu og við Magnús og Ingibjörg í fletinu, húsbóndinn var kominn í buxur en engan bol; þá heyrist í Magnúsi, " loksins fær maður að sjá almennilega rokkara". Er hægt að fá betra kopliment??. Einar og Jón Kristinn fóru að sjá Ísland- Ítalía 2-0 lukkulegir, tóku strætó heim ekki eins lukkulegir með strætó 50 mín bið. Strætó sökkar feitt.