heima...

...er best. Daglegt líf, leikir og ástir fjölskyldunnar í gula húsinu

25.6.04

Birgitta hefur áhrif á fjölskyldulífið

Vikan hefur verið viðburðarrík. Jón hefur verið á fótboltanámskeiði hjá KR. Evrópukeppnin hefur verið tímfrek hjá karlpeningnum og brottfall Englendinga olli sárindum sérstaklega hjá JKE hann átti erfitt með að sofna í gærkveldi. "James varði bara ekkert, ohhhhh hann átti að verja" X 99. Fjölskylduhátið Vífilfells var í dag mikil og fín skemmtun leiktæki fyrir börnin hamborgarar og pylsur snakk og stuð. Írafár mætti á svæði og tók nokkur lög. MHE fór og horfði á Birgittu, JKE var í fótbolta. MHE stóð í röð og fékk eiginhandaráritun hjá Birgittu, JKE var í fótbolta. MHE fékk mynd af sér og Birgittu, JKE var í fótbolta. Við reyndum að fara heim JKE í fótbolta Dæmigert!!!
Magnús fékk ss. eiginhandaráritum frá Birgittu á handabakið nú eru slagsmál hann neitar að þvo sér úfff.
Ingibjörg Steinunn fer í 5 mánaða skoðun á mánudaginn, það verður fróðlegt að sjá hvað hún er orðin stór, hún tók kipp núna i síðustu viku. Giska á að hún sé amk 7 kíló. Einar á afmæli á sunnudaginn 33ja jú hú. Vonum að það verði gott veður. Þá stefnum við á grill. Held ég gefi honum bara "tíma" til að fara í golf, enda er prívat frítími orðinn verðmætur hér á þessum bæ.

20.6.04

Sunnudagur

Afmælið gekk mjög vel kakan var mjög í anda dagsins þeir sem borðuðu mikið af henni urðu að vísu bláir í gegn, bláa höndin teygir sig víða. Magnús var alsæll með daginn, sól stuð og hann fékk ótal fínar gjafir. Í herbeginu er núna heill her af Bionicle og Riddara körlum í smiðju Legó og margt fleira. Mamma og Kristján komu í bæinn. Á laugardaginn fórum við í stúdentsveislu hjá Láru Betty svaka fín veisla og fullt af fólki. Sunnudagurinn fór í mega sumarboð hjá Kristínu systur Harðar. Þar sem kartöflufjölskyldan átti saman góðan dag. Kræsingarnar hjá Kristínu og Sigga voru einstakar, svartfugl á ýmsa vegu, hreindýrapate, nýr lax, spearribs, skyrterta , súkkulaðikaka og ég veit ekki hvað. við vorum allan daginn að borða bara eins og alvöru miðjarðarhafs stórfjölskylda. Tekin voru nokkur létt boltahlé og spilað kúluspil sem ég man ekki hvað heitir en hægt að fá á góðu verði í Europris.
Mamma var að hringja þau komu til Ísafjarðar kl 23:00 Djúpið var leiðinlegt þar sem er verið að gera við (Hestfjörðurinn að ég held).
nóg að sinni.