heima...

...er best. Daglegt líf, leikir og ástir fjölskyldunnar í gula húsinu

15.6.04

Hefst nú leikurinn

Nú ætla ég að gera tilraun með fjölskyldusíðuna, þar sem velunnarar okkar geta fylgst með okkur og frétt það sem ég gæti hugsanlega gleymt að segja ykkur frá.

Næsta mál í hér á Vesturgötunni er afmæli Magnúsar Hrafns. 17. júní er dagurinn eini og sanni, nú er það þannig að mér finnst svo gaman að halda veislur og vil helst bjóða öllum. Svo þetta stefnir svaka partý. Þannig að nú ætla ég að skipta afmælinu í tvennt bjóða baranfólki fyrir hádegi kl 11 og fullorðnum seinni partinn kl 17. Mun senda út tilkynningar um í hvorum hópnum fólk er. en endilega sendið komment ef annað hentar ykkur betur en hitt.
ykkar
Björg

1 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home