heima...

...er best. Daglegt líf, leikir og ástir fjölskyldunnar í gula húsinu

16.6.04

Afmælið nálgast

Hér er allt að verða klárt fyrir afmælið á morgun. Magnús Hrafn fór með kökur á leikskólann í morgun, hann tók líka video spólu, það er hefð að bjóða upp á skemmtidagskrá með góðgætinu. Ef einhver er í vandræðum með afmælisglaðning þá er Bionicle ofarlega á óskalistanum, Víkingakarlar og Riddarar og sjóræningjar frá Playmo er líka vinsælir. Aur í safnið kemur sér líka vel (MHE langar að eignast geislaspilara til að hafa inn í herbergi).
Ingibjörg Steinunn var í ungbarnasundi í gær og var náttúrulega aðalhetjan kafaði eins og herforingi, hló og skríkti við vorum ekkert smá stolt.
Jón Kristinn sparkar og sparkar, hann hefur verið á "námsekiðinu" "dagleg líf heima", en fer í næstu viku á fótboltanámskeið hjá KR. Hann fékk mjög góðan vitnisburð frá skólanum þegar honum lauk. "Jón Kristinn er traustur og ábyrgur nemandi sem getur unnið með hverjum sem er í bekknum. Hann hefur haft jákvæð áhrif á félagsandann í bekknum og skapað áhuga bæði hjá stelpum og strákum að leika sér saman úti í frímínútum." Við vorum að sjálfsögðu að rifna úr monti að eiga svona fínann strák

15.6.04

börnin

auðvita meinti ég barnafólki ekki baranfólki.

Hefst nú leikurinn

Nú ætla ég að gera tilraun með fjölskyldusíðuna, þar sem velunnarar okkar geta fylgst með okkur og frétt það sem ég gæti hugsanlega gleymt að segja ykkur frá.

Næsta mál í hér á Vesturgötunni er afmæli Magnúsar Hrafns. 17. júní er dagurinn eini og sanni, nú er það þannig að mér finnst svo gaman að halda veislur og vil helst bjóða öllum. Svo þetta stefnir svaka partý. Þannig að nú ætla ég að skipta afmælinu í tvennt bjóða baranfólki fyrir hádegi kl 11 og fullorðnum seinni partinn kl 17. Mun senda út tilkynningar um í hvorum hópnum fólk er. en endilega sendið komment ef annað hentar ykkur betur en hitt.
ykkar
Björg